Idræthøjskolen i Århus

BjøssIngi & GessIngi

10.12.2007 16:20:56 / idraet

Gott og blessað

Gott fólk. Það er heill hellingur búið að gerast síðan síðasta færsla var skrifuð. Við nennum ekki að skrifa það allt hérna inn. Þið getið bjallað í okkur ef þið viljið fá sögustund. Annars verðum við komnir heim von bráðar og þið kíkið kannski bara á okkur þar.





En í ljósi þess að ekki hefur komið færsla hér inn í fleiri ár þá erum við búnir að segja samningi okkar við bloggheiminn upp og leggjum skóna á hilluna. Við kunnum bara ekki að eyða síðunni! Þetta voru samt góðir tímar.



Bjørn og Gestur

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 15:20:17 / idraet

Vitleysa!!

Jæja þá.......höfum að sjálfsögðu verið með eindæmum latir hér. Það er mjög ólíklega að fara að breytast en þar sem þessi síða er nú uppi er alveg eins gott að reyna að nota hana.


Þessa dagana er allt í sínum fastaskorðum......tókum samt eina viku sem var frívika hér í Danmörku og því voru allir kennaranir nema einhverjir 3 í fríi. Það þýddi það að allir voru settir í einhverja öðruvísi viku þar sem við fórum í klifur einn daginn, skotfimi annan daginn og svo var eitthvað maraþon þar sem átti að synda, hlaupa og hjóla. Enginn fótbolti fyrir okkur í fótboltaakademíunni sem var frekar skítt. Sérstaklega vegna þess að handboltinn fékk að æfa einhverjar 4 æfingar vegna breska handboltalandsliðsins sem er hérna hjá okkur.


Fjórir nemendur voru staðnir að verki við hassreykingar í einu herberginu af húsverðinum hér í skólanum. Þvílík eindæmis heimska í sumum!! Þeir voru í fyrstu allir reknir úr skólanum og fá ekki að koma tilbaka.....þartil það kom í ljós að einn af fjórmenningunum var einungis að halda hinum bakkabræðrunum félagsskap og var því víst bara rangur maður á rangri stundu. Ég trúi því samt vel vegna þess að hann var sá eini sem sýndi einhverja blygðunarsemi þegar skólastjórinn greindi frá þessum fréttum og olli fjaðrafoki í vetrarbúðunum hér.


Við Björn grátum ekki hvarf eins bakkabræðranna....hann var nefnilega í herberginu við hliðina á okkur og hann var víst kominn í starf bíóstjóra og ásamt misgáfuðum vinum sínum hér við skólann horfði hann á kvikmyndir í borðtölvunni sinni sem kemur með sérpöntuðu THX hátalarakerfi sem nær 7000 desibilum!! Þeir ákváðu alltaf að byrja að horfa á þessar myndir í kringum miðnætti og voru að til svona 3. Ekki hefur þetta hjálpað til við nætursvefninn hjá mér.....þeir sem mig þekkja vita að ég get ekki heyrt úr slá þegar ég reyni að sofna. Þetta ástand hafði varað í dágóðan tíma og höfum við Björn farið til þeirra og látið móðinn mása í þrjú skipti sem dugði þó ekki til. Þá fór skólastjórinn í málið....sem endaði með því að hann var svo rekinn úr skólanum fyrir allt annað. Jólasveinninn kom með snemmbúna gjöf til okkar bræðranna í ár!!


að vissu auðvitað allir af því að Björn átti stórafmæli hér á dögunum þar sem drengurinn varð tvítugur 12.okt!! Það er auðvitað gaman að sjá strákinn stækka og vaxa úr grasi......ekki lítill lengur. Hann hélt upp á afmælið sitt og fór stór hópur fólks á Valhalla að borða á hlaðborði sem var mjög gaman...fullt af Bretum, Dönum og að sjálfsögðu Íslendingum. Þaðan var farið á eitthvað pöbbarölt. Ekkert nema gaman að því.


Síðasta laugardag var svo partý hér þar sem strákarnir klæddu sig upp sem stelpur og öfugt. Það vakti mikla lukku og vorum við tveir eins og tvær eldri konur.....sem var mjög fyndið. Við íslensku strákarnir vorum með vinninginn í dressunum þar sem sumir fóru í streng og við vorum málaðir og læti. Hillbilly Bjarki átti nú samt vinninginn þar sem nokkrir af dönsku strákunum héldu hreinlega að hann væri vinkona einhverjar stelpu hérna og börðust við hvorn annan um næsta dans við Bjarka greyið sem varð eiginlega bara skíthræddur og leið eins og nautalund í kjötborðinu í Nóatúni og hljóp í fangið á mér til að láta bjarga sér!!



Reynum að vera duglegri hér.......allavega duglegri heldur en færsla mánaðarlega. Þessvegna ætla ég ekki að hafa þetta lengra í bili


Gestur Brink

» 5 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 22:31:21 / idraet

Hjólaferðin til Sletten og keppnisferðin til Ollerup...

Þá er kominn tími á færslu hjá mér (Birni Inga). Við krakkarnir fórum til Sletten í síðustu viku og þeir sem tóku þátt í skoðunnarkönnunninni til hliðar og hökuðu við aðra hjólaferð fá rétt. Það var en önnur hjólaferðin hjá okkur krökkunum í Aarhus.

Sletten er rosalega fallegur staður þar sem að við krakkarnir gistum heilar 4 nætur og höfðum gaman af. Það var farið í alls konar leiki, t.d. O-Løb þar sem að ég og Kári vorum saman og ætluðum sko að vinna!!! Leikurinn fer þannig fram að við eigum að fara á ákveðna staði í skóginum sem eru merktir inn á korti og áttum að finna spjöld með 10 fótboltaliðum. Heyrðu okkur gekk svona frábærlega þegar að við vorum að hlaupa og fundum alla staðina. Síðan komum við í mark eftir 58,5 mínútur og vorum búnir að hlaupa eins og móngólítar (eins og sumir eru búnir að dansa við á Broen) og vorum ekkert smá sáttir. Heyrðu síðan komum við í mark og þá eru bara næstum því allir komnir. Jæja skítt með það að, en það sem var mest pirrandi var að 1,5 mínútu síðar koma Pétur og Pedro labbandi í mark og voru búnir að labba á alla staðina. Vá hvað við vorum pirraðir....... ;) Ekki satt Kári...?

Heyrðu það var nú farið í fleiri leiki. Svo dæmi séu tekinn fórum við í eggjaleikinn, þar sem að sumir fengu nú að finna fyrir því hve harður heimurinn er. Því að það voru nú nokkuð margir sem að fengu hrátt egg beint á hausinn.... ;) Síðan var farið í marga aðra leiki sem að þið getið fundið á síðunni www.danskelejer.dk!!

Síðan fórum við krakkarnir á Kanó og silgdum um eins og okkur einum var lagið. Ég og Binni vorum saman á Kanó og vorum nú helvíti slakir í byrjun fórum alltaf sikk sakk og enduðum síðan bara í runnum og trjám. En djöfull vorum við góðir á lokasprettinum, lang fyrstir.

Á þriðjudeginum fékk ég nú ekkert rosalega auðvelt jobb. Ég þurfti að gerast rútubílstjóri í einn dag. Ég keyrði frá Sletten á RÚTU og fór á æfingu um kvöldið. Síðan var farið snemma um morguninn, kl. 7, til Sletten með breska landsliðið í handbolta. Djöfull gerði maður þá hrædda, þeir vissu ekkert hvernig þeir áttu að haga sér með brjálaða Íslendingnum við stýrið sem að söng bara "Bjössi á mjólkurbílnum" alla leiðina, það voru margir sem að öskruðu og hótuðu því að fara út úr rútunni á tímabili. Sletten ferðin var bara rosalega fín ferð þar sem að maður fékk að kynnast alvöru danskri náttúru og fjölbreyttu dýralífi.... (snákar, íkornar, dádýr, froskar o.fl.) Sletten fær +++ af 5....

Keppnisferðin til Ollerup var nú ágætis keppnisferð þar sem að um 8 skólar kepptu um hina ýmsu titla. Þetta byrjaði á því að við stigum upp í rútu hjá feitasta karli í heimi og það þurfti fjóra nemendur og einn kennara til þess að hjálpa honum upp í rútuna. Ég er ekki að grínast en bumban lak niður á rist, hann var svakalegur... Þegar við komum þangað hitti maður nú nokkur kunnuleg andlit, eins og Aron Gauta Laxdal og Unni vinkonu hennar Rakelar. Það var gaman að hitta aðra Íslendinga og sjá samanburðinn á milli skólanna. Það er alveg klárt hver er í besta skólanum. Ég þarf ekki einu sinni að segja svarið!!!

Ég fékk það skemmtilega verkefni að spila með breska landsliðinu á mótinu, og það var nú ekki alslæmt. Heldur gerðum við okkur lítið fyrir og unnum mótið og höfðum gaman af. Breska liðið stóð sig bara með prýði og kannski að maður fá sér bara breskan ríkisborgararétt og spili með Bretum á ÓL 2012 í London, nei ég segi bara svona..... Þessi ferð til Ollerup fær hvorki meira né minna ++++ af 5 þar sem að við stóðum okkur bara rosalega vel íslensku krakkarnir og Gestur var valinn í draumaliðið í fótboltanum og var honum líkt við hinn snögga og fótafima Jaap Stam. En ferðin dregst niður um einn + vegna þess að ég hefði þess vegna geta sofið á ostasneiðum því að dýnan mín var svo ógeðslega þunn og ég vaknaði svona 17 sinnum þá nótt, þar sem að Gestur var að tala upp úr svefni og Gústi hraut meira og minna alla nóttina....

En það er nú nóg búið að gerast hérna hjá okkur félögunum í Aarhus og ætlum við strákarnir að koma með færslu næst sem að heitir Highlights frá Aarhus. Síðan er ekki langt í myndir frá Sletten, Ollerup og hinu og þessu.. þannig að ég mæli með að þið verðið dugleg að koma hérna inn á síðuna hjá okkur, Ingunum...

Ég læt þetta duga í bili....

Þangað til næst..

kv. Björn Ingi Friðþjófsson, beint frá Aarhus!!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 12:30:54 / idraet

Kominn á klakann!

Þá er maður kominn á klakann. Eftir 8 tíma ferðalag frá Árósum til Kaupmannahafnar og svo þaðan til Íslands. Lenti í svolitlu basli með að komast í flugið til Keflavíkur frá Köben þar sem pabbi gamli pantaði miðana fyrir mig og voru þeir því standby miðar. Allt var fullbókað í vélinni og fyrst um sinn sá ég fram á það að ég þyrfti að bíða á Kastrup í fleiri klukkutíma til að komast í flug. Ekki gladdi mig sú tilhugsun. Ég ákvað því að athuga hvort að ég gæti einhvern veginn reddað mér sjálfur og datt þá það í hug að fara við boarding hliðið og nappa cabin crewið sem væri að fara að fljúga vélinni heim. Ég byrjaði á því að spjalla við flugfreyjurnar og þær sögðu mér að ná tali af flugstjóranum til að sjá hvort hann gæti reddað mér. Ég beið átekta eftir honum og náði svo að spjalla við hann og hann sagði mér að hann myndi örugglega ná að koma mér inn. Ég brosti út að eyrum:D...var svo feginn. Þá var ég greinilega svo heppinn að einhver einn sá sér ekki fært að mæta í flugið og ég fékk eina sætið sem var laust í vélinn....fjúkk;)

Lenti svo í KEF um 3 leytið og þar beið Danni mín til að ná í mig.....viti menn, ég slapp í tollinum!! Ekki það að ég hafi verið að fara með eitthvað sem ekki má í gegn....það virtist bara vera svo að við tollurinn hefðum verið búnir að mynda sérstakt vinasamband á milli okkar....en greinilega ekki.

Það vissu ekki margir af því að ég væri að koma heim.....það er einungis vegna þess að ég ætlaði að koma Söru á óvart og má með sanni segja að það hafi tekist. Ég fór heim til hennar á meðan hún var að þjálfa stelpan þar sem Soffía og Stella tóku á móti mér og síðan þegar Sara kom heim.....þá fékk hún áfall...gaman að því.:haha:

Í Danmörku var leikur hjá strákunum á fimmtudagsmorgun sem ég veit ekki hvernig fór....megið endilega kommenta og segja frá leiknum krakkar!! Já síðan er ferð hjá þeim til Sletten sem á að vera einn sá fallegasti staður sem Danmörk hefur uppi að bjóða....einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að hér á Íslandi geturu séð miklu fallegri landslag en samt gaman að koma þangað. Ég skildi myndavélina mína eftir hjá Birni í DK og hans skyldustarf á meðan ég er í burtu er að taka myndir úr Sletten....og að fara vel með gripinn í leiðinni.

Annars bið ég kærlega að heilsa þeim í DK sem lesa þetta og megi þið skemmta ykkur vel í Sletten....sérstaklega á leiðinni þangað og tilbaka!!:lol:

                            

 Staðurinn Sletten...kannski Ann Kjersti Kjeia Sletten verði þar eða þá kötturinn Ingrid Sletten Felis Jubatus??

    

 

Íslensk Kv. GesturBrink


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 19:15:30 / idraet

Helgardagbók og mataræði

Bloggleysið hérna er til háborinnar skammar.......þetta er bloggheiminum hreinlega óboðleg framkoma. Þessu verður úr að bæta......við reynum að gera það. Er lika svoldid leidinlegt tegar tvær kvartanir hafa borist fra somu manneskjunni!!

Nóg í gangi hér í Danmörku. Æfingar á fullu en verður að segjast að standardinn er kannski ekki hinn besti og erum við báðir tveir ef til vill frekar vonsviknir þegar að því kemur. Það þýðir víst ekki að vera önugur út í það heldur verður maður bara að vera jákvæður og gera sem best úr þessu.....það gengur ágætlega hreint!

 

Síðustu helgi var nóg að gerast....eins og kannski allar helgar þegar maður er staddur í svona skóla. Á föstudagskvöldið stóðum við íslendingarnir undir væntingum og tókum allflest á því það kvöldið. Einhver fór niðrí bæ um eitt og tók taxa rakleiðis tilbaka eftir að þangað var komið. Vaknaði sá maður næsta morgun í sófanum hjá frænku sinni og frænda sem eru svo góð að hýsa hann svona af og til. Aðrir héldu stuðinu áfram og fóru á skemmtistað sem er í raun bara bátur en nefnist þó broen, hvernig sem á því stendur. Þar var dansað og sungið þar til upp undir næsta morgun. Þar var kátt á hjalla.

Laugardagurinn endaði í mjög svo svipuðum farvegi og herlegheitum...þó svo að sumir hefðu tekið því öllu rólegra eftir erfitt föstudagskvöld. Við nefnum engin nöfn. Samt gaman að segja frá því að einn Dani sem er hér í skólanum var niðrí bæ og lenti í því skemmtilega atviki að vera að pissa utan í húsvegg þar sem lögreglan kemur keyrandi framhjá. Ölvaður og í panik rennur hann buxnarennilásnum upp og smellir saman beltinu til að sleppa við háa fjársekt sem fylgir því að vera tekinn við að pissa. Hann áttar sig hinsvegar ekki á því að hann var ekki búinn að klára alveg nógu vel úr honum og hann kemur til allra aftur búinn að pissa á sig allan.....sem vakti mikla lukku meðal samnemenda hans.....tvítugur maðurinn búinn að pissa í buxurnar!!

Annars er lífið nú svona í sömu skorðum og áður...alltaf er maður borðandi hollan mat, grænmeti og ávexti þar sem maður fær sjaldnast sósu með kjötinu og alltaf er vatn á borðum. Sósan hefur leikið annann okkar frekar grátt í gegnum tíðina en Lárus Grétarsson var vanur að spyrja mig hvort að ég borðaði mikið af sósum alltaf þegar kom að fituprósentutjékki hjá 3.flokk Fram. En hér úti fer sjaldan sem aldrei sósa inn fyrir mínar varir, svo mikið er víst.

Svo loksins þegar maður ætlar að vera góður við sjálfan sig hérna og leyfa sér að sitja yfir eina máltíð hér í skólanum og fá sér að borða niðrí bæ eitthvað sem er kannski aðeins óhollara heldur en maturinn hér þá fær maður eitthvað sem skilur mann eftir á klósettinu sama kvöld með ræpu. Þannig varð fyrir okkur félögunum bara núna í gærkvöld þar sem við fórum niðrí bæ eftir 2 æfingar í dag og ákváðum svo að fara á stað sem heitir Mickey's pizza. Björn sagði mér, Kára og Binna að maður að nafni Slash sem er liðstjóri í Aarhus GF, liðinu sem Björn æfir með, hafi sagt sér að á Mickey's Pizza, man samt ekki nakvæmlega hvad stadurinn heitir, fengust bestu pizzur Árósa. Auðvitað hugsuðum við allir með okkur að hér hlytu að vera rosalegar pizzur og sársvangir setjumst við niður við borð og pöntum okkur pizzur....Gestur og Kári með pepp og Binni og Bjössi havana. Við bíðum spenntir og glorhungraðir eftir pizzunum og loksins koma þær. Það sem við fengum á borðið okkar var svo langt frá því að vera pizza heldur líktist þetta brauðklatta með rússneskri blóðmör á í stað pepperonis....hún lyktaði eins og hún hefði verið elduð uppúr húðfitu og bragðaðist hrikalega illa. Svín hefði heldur soltið en að éta þetta!! Og þessi staður leyfir sér að heita Mickey's Pizza......ekki urðum við svo hissa þegar við litum í kringum okkur og sáum alla aðra vera að borða ALLT annað en pizzu......ógeð!! 

 

       Pizzan a Mickey´s tekinn i simann hans Kara!!

 

 

Koma vonandi myndir a næstunni!!

Kvedjum ad sinni, GesturBrink


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 15:30:04 / idraet

Myndir af strákunum í DK

Við erum búnir að skutla inn myndum fyrir ykkur hér til hliðar......kíkiði á þetta

GesturBrink og BjössIngi


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 15:26:20 / idraet

Helgin 24. - 26. Ágúst

Jæja, helgin byrjaði vel hér í Aarhus. Föstudagurinn var tekinn snemma og var vaknað kl. 7 og skroppið í morgunmatinn og síðan bara beint á æfingu. Við byrjuðum á því að fara á æfingu hjá "klikkaða Frank" sem er fysical trainer í skólanum þar sem hann kenndi okkur að valhoppa. Síðan var bara farið á æfingu í 2 klukkutíma. Gestur fór á lyftingaræfingu því að kallinn er enn smá meiddur en það fer nú bráðum að batna. Ég fór beint á handboltaæfingu þar sem að Englendingar eru í aðalhlutverki. Margir sem kunna valla að kasta og grípa og það lendir þá í okkar höndum að kenna kvikindunum.

Útsýnið var svart þegar að ég frétti að liðið mitt (Aarhus GF annað liðið) ætti að fara til Ikast sem er lítill sveitabær á Vestur - Jótlandi. En það rættist nú ágætlega úr þeirri ferð. 3 æfingar á laugardaginn var staðreynd og síðan var bara fengið sér smá öl og þjálfarinn sagði að við ættum að vera skynsamir vegna þess að við ættum erfiðan leik fyrir höndum daginn eftir. Góði strákurinn frá Íslandi fór nú bara að sofa um miðnætti en margir aðrir leikmenn voru nú bara í sundlauginni um morguninn þegar ég vaknaði blindfullir kl. 7 og það voru ekki bara leikmennirnir heldur líka þjálfarinn, sem var algjörlega á rassskatinu. Drengirnir lögðu sig um stund og síðan var leikið á móti Ikast sem er mjög gott lið hér í DK. Sigur var staðreynd eftir venjulegan leiktíma og voru allir í skýjunum eftir leikinn. Þetta var mjög góð helgi handboltalega séð og var ég ánægður að hafa sleppt bjórdrykkjunni og hafa tekið skynsama Íslendinginn á þetta. En þetta gekk vel hjá mér og þjálfarinn var í skýjunum eftir helgina....

Gestur var eftir í Aarhus að sjá um heimilið meðan bóndinn var á æfingum. En hann fór í afmæli á laugardeginum og fóru krakkarnir út að borða við "Síkið" eins og við köllum það, en það er svona lítil á sem rennur í gegnum Aarhus. Veitingarstaðurinn heitir Valhalla þar sem að boðið er upp á endalaust vín, bjór og mat. Og var maturinn bara andskoti góður samkvæmt Gesti Inga. En það var einnig helvíti skemmtileg helgi hjá Gesti Inga og krökkunum hérna í Aarhus

Hápunktar helgarinnar var það á föstudagskvöldið þegar að nokkrir voru búnir að fá sér í tánna, þá gerðist það skemmtilega atvik að Binni, sem er Íslendingur hér, fann ekki lyklana sína og komst ekki inn til sín. En var nú samt alveg viss um að herbergisfélaginn hans (Kristin frá DK) væri heima og var nú orðin helvíti pirraðu. Hann ákvað því að klifra upp á svalir hjá sér vegna þess að þær voru opnar. Kemur hann þá ekki að herbergisfélagunum sínum með kærustunni í ákveðnum stellingum sem við förum ekki nánar út í hér. Binni kallinn veltist um af hlátri og datt næstum því niður af svölunum. Þetta er helvíti gott atvik sem á seint eftir að gleymast....

Við Íslendingarnir höfum verið duglegir að kenna krökkunum í skólanum íslensk orð og ég held að Scott sem er Englendingur með mér í handboltanum eigi setningu helgarinnar: "Gestur er mit síffan pung".... (Gestur er með síðan pung)...

Góð helgi að baki staðreynd.....

Ég læt þetta nægja í bili, þið megið eiga von á nýju bloggi og myndum á næstu 2 dögum....!!!!

Kærlig hilsen,

Björn Ingi Jensen (Friðþjófsson):D


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 22:52:12 / idraet

Ferð í Danaveldi og hjólreiðageðveiki

Jæja...þá er það fyrsta bloggfærsla lífs míns. Aldrei nennt þessu áður en það er jú vissara að hafa eitthvað svona í gangi svo að vinir og vandamenn heima geta fylgst með komandi tímum félaganna hér í DK. Sama hvernig fer þá lofa ég engu varðandi færsluduglegheit....það á bara eftir að koma á daginn hversu oft maður sér sér fært til að koma hér inn og arka niður reynslusögur. Er núna búinn að vera hér í að verða 2 vikur og þurfti að klöngrast út með hálft tonn af farangri þar sem maður tók allt allt of mikið af drasli með sér.....hefði átt að hlusta betur á söru mína þar....þetta kennir manni!:S Að konan sem að seldi mér miðann í lestina svo frá köben til árósa hafi ekki látið mig vita af því að það þyrfti að kaupa sér miða með sæti er til háborinnar skammar en kannski er það minn feill að hafa ekki notað heilann þegar ég keypti miðann.....en það varð til þess að ég stóð nærrum allan tímann og lestarferðin er 4 tímar. Það byrjaði ekki vel þetta ferðalag.

Núna er maður búinn að koma sér vel fyrir hér í skólanum og allt að detta í gírinn hérna varðandi fótboltann...þó er svolítið óþægilegt hvað það er mikil óvissa með daginn.....maður vaknar bara og svo veit maður voða lítið hvað dagurinn ber í skauti sér. Því getur hann endað í rólegheitum þar sem lítið sem ekkert er gert eða akkurat öfugt þar sem allt er á fullu gasi og brjálað að gera. Í dag var t.d. rólegt og lagning í 3 tíma sem var bráðnauðsynleg í rauninni. Það er samt aðallega vegna þess að á föstudaginn síðastliðinn var brjálaður hjóladagur þar sem lýðurinn var ræstur klukkan 7 og hent í sig moggunmat og öllum skipt í lið með 7 fólki hvert og svo var hoppað upp á hjól og við tók lengsti hjólarúntur lífs míns. Það var hjólað um Árósir endanna á milli og liðin áttu að leysa gátur sem voru á stöðum í bænum hér og þar....þeim hafi verið komið fyrir áður. Ekki bætti það úr skák að ég þurfti að hjóla á bæjarhjóli sem eru lélegustu hjól sem þú getur held ég hjólað á...ég held að rónarnir noti þau ekki einu sinni. Það er einn gír á þessum hjólum og hnakkurinn á þeim öllum er laus.....sem var mjög pirrandi til lengdar :klikk: ekki voru þau hönnuð til að hjóla um í þessum skógum sem eru að finna í Árósum....en maður lét sig hafa það... Björninn þurfti einmitt líka að hjóla á slíku hjóli. Um klukkan 6 um kvöldið var búið að hjóla allan daginn og þá hittust öll liðin og átu eitthvað saman og báru saman bækur sínar varðandi stig í gátulausnum. Síðan fengu öll liðin segldúk og voru send í einhvern skóg til að finna sér svefnstað. Það gekk nú líka svona vel að minn hópur gisti í fuglahúsi sem einhver bóndi átti til og var það tómt af fuglum en fullt af fuglaskít í staðinn....sem vakti ekki mikla lukku. Vegna mikillar þreytu og slappleika var farið að sofa snemma og svo vaknað daginn eftir til að hjóla smá meira...hjóluðum þar til klukkan 2 um laugardaginn og því voru þetta um 60 km allt í allt á hjóli...það er ágætis æfing.

Á laugardaginn var svo eitthvað velkom fest sem var bara fint í allflesta staði....drukkið smá öl og slappað af.!!

Þetta er komið ágætt í bili....ætla ekki að drepa ykkur á fyrstu færslu! Skutlaði einnig inn einhverjum myndum hér til hliðar frá íslandi.....myndir frá DK koma von bráðar....ekki örvænta!

 

          

 hejhej....GesturBrink


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 22:22:30 / idraet

Gesturinn er kominn....

Jæja þá er Gestur Ingi kominn og fyrstu dagarnir búnir og þetta hefur mjög gaman. Við Gestur lentum í þeim miklu hremmingum að við vorum settir í herbergi með örðum nemendum. Gestur var settur í herbergi með Englendingi og Björn Ingi var svo heppinn að vera settur í herbergi með Grænlendingnum ógurlega Ullliucqi Grønvald ;) ..... en hann to'k selskinn og spjót meðferdis. En heilladísirnar voru með okkur því það var einhver vitleysa í kerfinu. Sem endaði með því að við félagarnir lentum saman í herbergi. Alger klassi......

En næst á dagskrá er bara strembinn kynningarvika og hjólakeppni þar sem 11 lið keppast um hjólreiðabikarinn. En við drengirnir frá Danaveldi verðum duglegir að skrifa skemmtilegar greinar og setja fyndnar myndir héðan frá Århus. Þannig að verið bara dugleg að kíkja á okkur....

Bestu kveðjur:D,

Gestur Ingi og Björn Ingi

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.08.2007 22:23:35 / idraet

Fyrsta vikan í Århus

Jæja þá er maður kominn til Aarhus í DK. Það var erfitt að fara frá Íslandi í fyrstu en þetta venst þegar maður er kominn inn í menninguna og búinn að fá sér 2-3 ekta danskar pølser. En síðasta vikan á Íslandi var frábær, eitt af bestu djammkvöldum allra tíma var á Laugardeginum 21. júlí þegar við Framarar komum saman og drukkum okkur fulla og fórum í endalaust af drykkjuleikjum. Síðan var farið niður í bæ, á Oliver og Brjánsi (gamli kennari og handboltamaður) bauð mér (BjössInga) og Rakel Fly upp á töfrateppi. Síðan var haldið á Hverfisbarinn og fengið sér nokkur tópasskot og smá tóbak í nös ;) ..... Frábær endir á 19 ára dvöl á Íslandi... en maður kemur nú pottþétt aftur!!

Þegar komið var til Aarhus var tekið vel á móti mér. Aksel Norgaard, leder Sportsakademiunnar, kom valhoppandi að mér og tók allar töskurnar á bakið og gekk síðan með þær að bílnum.... þvílíkur köggull !!

Síðan leið stóra stundin upp þann 30. Júlí. Þá var farið á fyrstu æfinguna hjá Aarhus GF. Það sem beið mín var 3 tíma æfing. Fullt af hlaupum og styrktaræfingum fyrir lappirnar, fullt af markmannsæfingum og öðrum ferlegheitum. Verð nú bara að segja að það er ekkert skrítið að svona margir íslenskir markmenn séu svona lélegir. Þvílík tækni sem er komin í danska boltann. Þetta eru bestu aðstæður sem að maður getur æft við í Danmörku og er æft í aðalhöllinni (NRGi Arena) sem er ein af flottustu höllunum í Danmörku. Hópurinn hjá Aarhus er góður og er einn Íslendingur í liðinu sem heitir Sturla Ásgeirsson (gamall ÍR-ingur). Þjálfararnir eru nú ekki af minni gerðinni. Aðalþjálfarinn er Erik Veje Rasmussen sem þjálfaði Flensburg til margra ára og spilaði í Þýskalandi fram yfir fertugt og í Danmörku til 46 ára aldurs. Aðstoðarþjálfarinn er Norðmaðurinn Christian Berge sem spilaði með Flensburg í mörg ár og kom síðan til Aarhus GF til þess að klára ferillinn.

 Erik Veje Rasmussen                                 

Það er um 25 stiga hiti og glampandi sól hér í Aarhus þannig að það er ekki hægt að kvarta á þeim bænum. En annars þá er heilsan góð og það fer að styttast í GessaBrink og þá verður nú kátt á hjalla.......

Kærlig hilsen, BjössIngi


» 0 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti